Að læra að 2+3=4 en segja svo 2+2= 5 á prófinu
Landsvirkjun hlýtur að fá falleinkun, annað hvort í siðferði eða hlustun. Hún hefur nýlokið við að verðlauna nokkra krakka fyrir verkefni um orkumál- og umhverfismál með því að leyfa þeim að horfa á forseta lýðveldisins kúka á sig í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar. Landsvirkjun virðist hafa gætt hlutleysis þegar hún valdi verkefnin og má virða hana fyrir það. Hitt er annað mál að annað hvort hafa aðstandendur kepninnar og framkvæmdarinnar (þar með talið forsetinn) ekki lesið verkefnin eða þá hitt (sem mér þykir nú ívið líklegra) að þeim standi nákvæmlega á sama og hafi tekið þá meðvituðu ákvörðun að gefa lífríki jarðar fingurinn (nú eða byssustinginn, svo við notum meira viðeigandi líkingu).
Hér byrti ég verkefni Guðrúnar Ólafsdóttur og Sindra Snæs Einarssonar:
http://www.lv.is/files/mov/kar/Verk_GS/index.htm
Þau kepptu í eldri flokknum og þótt einstaka galla megi finna á verkefninu er það afar vel unnið. Ég vek sérstaka athyggli á skrifum þeirra um Kárahnjúkavirkjun.


4 Comments:
Þessi færsla er stafsett eftir einhverjum allt öðrum reglum en þeim sem ég kenndi þér.
Hún er það sem ég kalla óstafsett. Það er nýr ritháttur, og hefur reynst mér mun betur en sá gamli. Hvað er þetta, lastu ekki Dóra Lax?
hey, I just got a free $500.00 Gift Card. you can redeem yours at Abercrombie & Fitch All you have to do to get yours is Click Here to get a $500 free gift card for your backtoschool wardrobe
Hello I just entered before I have to leave to the airport, it's been very nice to meet you, if you want here is the site I told you about where I type some stuff and make good money (I work from home): here it is
Post a Comment
<< Home